24.01.2012 20:52

Eldvatn 1-3 apríl 2012

Já það er klappað, klárt og staðfest að Óðfluga Angling Club mun í ár opna Eldvatnið í Meðallandi.
Á síðasta ári opnuðum við Steinsmýravötnin og tókst sú ferð frábærlega í alla staði og verður spennandi að fara í fyrstu veiðiferð ársins aftur í skaftafellssýslu og eiga stefnumót við óða sjóbirtinga.










31.12.2011 16:14

Gleðilegt nýtt veiðiár 2012

Gleðilegt nýtt ár og takk fyrir árið sem er að líða! Megi nýja árið verða ykkur gleðilegt og gæfuríkt ;)

24.12.2011 15:24

Gleðileg Jól

Óðflugumenn óska öllum landsmönnum gleðilegra jóla! hóhóhó

26.11.2011 21:53

Jólapakkinn í ár!

Núna þegar desember er að detta inn þá er rétt að athuga hvað er að koma út fyrir jólin af veiðitengdu efni.
Bræðurnir skemmtilegu Ási og Gunni eru mættir aftur og núna með leitin að stóraxinum! við erum að tala um bók og dvd sem er bara snilld. Hér er linkur með trailernum http://www.youtube.com/watch?v=vJr8xQU6NvI þetta er flott í pakkann ;) 

Svo er það Bubbi Morthens meistari með flotta bók sem er myndskreytt af Einari Fal og þetta combo bara getur ekki klikkað. 

Svo er það Gunnar Bender og co með bókina Stórlaxar sem er líklega mjög góð og er gaman að því að Bjössi í veiðibúðinni við lækinn stórlaxamaður verður í bókinni, það hjálpar mikið til.

Ég vil gefa þessum snillingum gott klapp fyrir að búa til og framleiða íslenskt efni um laxveiði þetta er ómetanlegt bara snilld!!!!! og hvetjum við Mokveiðimenn til að skella í eina ræmu fljótlega :)






20.11.2011 22:14

Árshátíð Óðfluga - Angling Club

Árshátíð Óðfluga var haldin með glæsibrag fyrir stuttu síðan og heppnaðist hún frábærlega í alla staði.
Kvöldið byrjaði á kastkeppni í boði Óttarrs og veitt voru verðlaun fyrir afrek á árinu. Svanþór var með myndagetraun og Robbi með spurningakeppni. Einnig var risa happdrætti og viljum við þakka þeim sem hjálpuðu til með vinninga, N1, Veiðiflugur, Krafla, Veiðibúðin við lækinn, Hrygnan, Intersport ofl.
Viggi var með rosalegar nautalundir og Bósinn með svakalega humarsúpu og Hjössi mætti með grafnar gæsabringur sem gleymdust í ískápnum :). Já semsagt frábært kvöld sem fer í sögubækurnar!

     

28.10.2011 10:47

Líklegir viðkomustaðir ´12

Hvar verða veiðimenn Óðflugu á næsta ári....

Líklegar ár:

Miðfjarðará við Bakkafjörð

Lax-á Aðaldal


Eystri-Rangá


Ytri-Rangá




Vatnsdalsá


Þjórsá


Síðan er aldrei að vita hvað dettur inn

21.10.2011 14:05

VEIÐI 2012

Samkvæmt áræðanlegum heimildum hefur fréttastofa Óðflugu Angling club
heyrt að meðlimir Óðflugu eigi  bókað í sjóbirting næsta vor í Eldvötnin
Nokkuð ljóst að of erfitt er að bíða í 8 mánuði eftir nýju tímabili í laxinn...
Greinilegt að meðlimirnir eru farnir að sjá fleira en lax í augunum enda
er sjóbirtingur ívið skemmtilegri í töku (segja fróðir menn)




*Edit* Staðfest!!!



18.10.2011 13:07

Lokahóf Óðflugu

Daginn drengir



Vil þakka Bóbó fyrir að opna húsið sitt fyrir meðlimi Óðflugu og frábæra gestrisni.
Þetta var frábært kvöld - góður matur og umfram allt góðir strákar...
Veiðihópurinn verður alltaf sterkari og sterkari og reynslunni ríkari með hverju veiðiárinu.

Hlakka til að veiði með nýju meðlimum Óðflugu á nýju ári.




09.09.2011 10:52

Styttist í lok tímabils..

Nú hefur veiði verið lokið í Elliðaánum og eru lokatölur úr henni 1150 laxar sem er ekki nema 14 löxum minna en í fyrra. Áin er full af laxi frá stíflu og upp að Höfuðhyl þannig að nóg er eftir af laxi í ánni til að hrygna.

Laxá í Ásum er líka að loka og er veiðin þar 433 laxar á móti 763 löxum í fyrra sem er hrap uppá 300 laxa. Mikið minna hefur veiðst í mörgum ánum fyrir norðan en í venjulegu ári hver svo sem skýringin kann að vera.

Það virðist þó vera að margar árnar verði nálægt sínum meðaltölum þannig að þetta ár fer líklega í bækurnar sem meðalár í veiðinni. Það er bara ekki hægt að fara fram á metár á hverju ári en nokkrar árnar hafa þó slegið sín met og nægir þar að nefna t.d. Svalbarðsá, Jöklu og svo erum við 100% viss um að Breiðdalsá slái nýtt met og fari jafnvel í 1300 laxa.

20.08.2011 09:24

Norðlingafljót

Bósi okkar maður var við veiðar í Norðlingafljóti í borgarfirði í sól og blíðu í vikunni ásamt karl föður sínum og öðrum félögum. Þeir feðgar settu í og lönduðu nokkrum glæsilegum löxum og voru að koma grálúsugir laxar á land með halalús og alles. Hér má sjá 2 myndir af svæðinu, alltaf fallegt í borgarfirði.




11.08.2011 13:18

Laxar á land

Góðan daginn, Óttarr Þór okkar maður var við veiðar í gær á vestfjörðum og setti í nokkra laxa og landaði 2. Hér má sjá myndir af löxunum í blíðskapar veðri! það vantaði bara David Attenborough til að mynda daginn. 




09.08.2011 13:06

Langá Del Sol

Okkar stórlaxamaður Guðmundur góði eða Bóbó eins og hann er kallaður var við veiðar í langá ásamt félaga sínum og settu þeir í nokkra laxa við Costa del sol aðstæður og lönduðu nokkrum og var þar á meðal maríulax hjá félaganum og við óskum honum að sjálfsögðu til hamingju. Næst á dagskrá hjá Óðflug mönnum er Eystri Rangá 26 ágúst nema að annað detti inn (Öngullinn).   


17.07.2011 22:58

Laxá í Aðaldal 2011

Við segjum bara eins og Bing Crosby söng hérna um árið  (how you hate to say goodbye to laxá) já við vorum að koma úr Laxá í Aðaldal eftir tveggja daga veiði í frábærum félagsskap og fínni veiði. Við mættum auðvita með mikilli tilhlökkun og með hjartað í buxunum bara að vita til þess að við værum að fara að kasta flugu í eina frægustu á í heimi. Eins og menn sem hafa veitt í laxá vita þá er oftast engin mokveiði en við stóðum okkur ágætlega meða fyrstu tilraun og hjálp frá hinum unga og efnilega guide Ármanni eldhressa. 7 laxar komu á land og voru þeir feitir, sterkir og flottir og sá stærsti 14 pund sirka. Við settum í einn risa lax og var það ótrúleg sjón að sjá en hann slapp í þetta skipti og við munum klárlega koma aftur í Laxá! You will dream about fishing in the Laxá, lovely Iceland Land of Salmon ;) 










10.07.2011 11:58

Miðfjarðará 2011

Góðan daginn, við nokkrir úr Óðflugu vorum að koma heim úr frábærri ferð í Miðfjarðará. Þegar við mættum á svæðið var áin eitt stórfljót og aðeins 4 laxar komnir á land. Allt fór þetta rólega af stað en svo bar til tíðinda þegar Svanþór og Viggi náðu að komast á bragðið og lönduðum sitt hvorum laxinum á Kolskegg hvað annað :). Næstu 3 vaktir á eftir fór að sjatna í ánni og þá átti allt eftir að verða vitlaust og menn settu í laxa út um alla á og lönduðum 14 löxum og misstum allt of marga. Laxarnir voru flestir í kringum 70 cm og svo voru 75,76,77 cm laxar og svo auðvita misstum við þessa risa stóru :) 11 af þessum löxum tóku baneitruðu fluguna Kolskegg!! Frábær ferð í alla staði og það er klárt að Miðfjarðará er á sem verður alltaf í uppáhaldi hjá Óðflugu mönnum ;) þarna gerast ævintýrin.Myndir eru að koma inn.









02.07.2011 19:14

Eystri Rangá

Það var hitað upp í Eystri Rangá í dag og kom ein mjög spræk hrygna á land 88cm





Flettingar í dag: 10
Gestir í dag: 6
Flettingar í gær: 46
Gestir í gær: 31
Samtals flettingar: 152389
Samtals gestir: 37711
Tölur uppfærðar: 9.2.2012 04:42:32