26.04.2012 18:08

Sumarið 2012

Núna þegar sumarið er komið og um 2 mánuðir í fyrstu ferðirnar í lax þá er rétt að huga að því hvert Óðflugumenn eru að fara í sumar.

Fyrst ber að nefna Miðfjarðará sem er í miklu uppáhaldi hjá okkur 

 

Það verður farið í Vatnsdalsá, rómuð og fræg fyrir stórlaxa :)

Laxá í Aðaldal verður á sýnum stað með tröllin frægu



 Það verður farið í Hofsá 

Norðlingafljót verður einn af fjölmörgu áfangastöðunum

Eystri Rangá að sjálfsögðu enda oft kallað æfingasvæði Óðflugumanna


Sumir eiga daga í Elliðaánum


Farið verður í Leirvogsá


Þá fer sá frækni í Fáskrúð í Dölum


Haustskot verður í Langá á mýrum


Ofl ofl ofl GLEÐILEGT SUMAR :) 
 

 

26.04.2012 09:14

Johnnie Walker flugan

 

Leitað að Johnnie Walker flugunni

 
Verslunin Veiðiflugur, Kamasan og Johnnie Walker eru að leita að flugunni sem fær að heita eftir viskíinu Johnnie Walker. Þetta er hnýtingarkeppni og er öllum heimil þáttaka.

Þeir sem vilja taka þátt í hnýtingarkeppninni er bent á að fara í verslun Veiðiflugna á Langholtsvegi 111 og skrá sig til leiks. Annars segir ennfremur í tilkynningu frá Veiðiflugum:

"Johnnie Walker fæst í fjórum bragðtegundum og þess vegna leitum við að flugu sem hægt er að hnýta í fjórum litaafbrigðum. Þær eru:

- Johnnie Walker Rauð
- Johnnie Walker Svört
- Johnnie Walker Gyllt
- Johnnie Walker Blá

Hér eru reglur um hnýtingu flugunar:

1. Allir keppendur fá sérstaka Kamasan öngla í Veiðiflugum og það ber að skila flugunum á þeim önglum, brot á þessu verður til þess að flugan er dæmd úr leik.
2. Flugan má vera hnýtt úr hvaða efni sem er.
3. Skila þarf öllum fjórum tilnefndum litaafbrigðum af flugunni til að vera gildur þáttakandi.
4. Flugan á að vera hnýtt með því til hliðsjónar að vera laxafluga.
5. Skiladagur hnýtinga er mánudagurinn 21. Maí fyrir klukkan 18:00 í verslun Veiðiflugna á Langholtsvegi 111

Úrslit verða kynnt í verslun Veiðiflugna 23. Maí klukkan 17:00

Verðlaun

1. Sæti hlýtur Guideline Exceed 9.6 feta fyrir #7 sem er ný stöng frá Guideline, hönnuð af Klaus Frimor. Eina stöng í tvo daga í Laxá í Mývatnssveit og gjafakörfu frá Johnnie Walker (eingöngu fyrir keppendur sem náð hafa 20 ára aldri).
2. Sæti hlýtur 30.000 kr úttekt hjá Veiðiflugum og glaðning frá Johnnie Walker ((eingöngu fyrir keppendur sem náð hafa 20 ára aldri).
3. Sæti hlýtur 20.000 kr úttekt hjá Veiðiflugum og glaðning frá Johnnie Walker ((eingöngu fyrir keppendur sem náð hafa 20 ára aldri).

 

24.01.2012 20:52

Eldvatn 1-3 apríl 2012

Já það er klappað, klárt og staðfest að Óðfluga Angling Club mun í ár opna Eldvatnið í Meðallandi.
Á síðasta ári opnuðum við Steinsmýravötnin og tókst sú ferð frábærlega í alla staði og verður spennandi að fara í fyrstu veiðiferð ársins aftur í skaftafellssýslu og eiga stefnumót við óða sjóbirtinga.










31.12.2011 16:14

Gleðilegt nýtt veiðiár 2012

Gleðilegt nýtt ár og takk fyrir árið sem er að líða! Megi nýja árið verða ykkur gleðilegt og gæfuríkt ;)

24.12.2011 15:24

Gleðileg Jól

Óðflugumenn óska öllum landsmönnum gleðilegra jóla! hóhóhó

26.11.2011 21:53

Jólapakkinn í ár!

Núna þegar desember er að detta inn þá er rétt að athuga hvað er að koma út fyrir jólin af veiðitengdu efni.
Bræðurnir skemmtilegu Ási og Gunni eru mættir aftur og núna með leitin að stóraxinum! við erum að tala um bók og dvd sem er bara snilld. Hér er linkur með trailernum http://www.youtube.com/watch?v=vJr8xQU6NvI þetta er flott í pakkann ;) 

Svo er það Bubbi Morthens meistari með flotta bók sem er myndskreytt af Einari Fal og þetta combo bara getur ekki klikkað. 

Svo er það Gunnar Bender og co með bókina Stórlaxar sem er líklega mjög góð og er gaman að því að Bjössi í veiðibúðinni við lækinn stórlaxamaður verður í bókinni, það hjálpar mikið til.

Ég vil gefa þessum snillingum gott klapp fyrir að búa til og framleiða íslenskt efni um laxveiði þetta er ómetanlegt bara snilld!!!!! og hvetjum við Mokveiðimenn til að skella í eina ræmu fljótlega :)






20.11.2011 22:14

Árshátíð Óðfluga - Angling Club

Árshátíð Óðfluga var haldin með glæsibrag fyrir stuttu síðan og heppnaðist hún frábærlega í alla staði.
Kvöldið byrjaði á kastkeppni í boði Óttarrs og veitt voru verðlaun fyrir afrek á árinu. Svanþór var með myndagetraun og Robbi með spurningakeppni. Einnig var risa happdrætti og viljum við þakka þeim sem hjálpuðu til með vinninga, N1, Veiðiflugur, Krafla, Veiðibúðin við lækinn, Hrygnan, Intersport ofl.
Viggi var með rosalegar nautalundir og Bósinn með svakalega humarsúpu og Hjössi mætti með grafnar gæsabringur sem gleymdust í ískápnum :). Já semsagt frábært kvöld sem fer í sögubækurnar!

     

28.10.2011 10:47

Líklegir viðkomustaðir ´12

Hvar verða veiðimenn Óðflugu á næsta ári....

Líklegar ár:

Miðfjarðará við Bakkafjörð

Lax-á Aðaldal


Eystri-Rangá


Ytri-Rangá




Vatnsdalsá


Þjórsá


Síðan er aldrei að vita hvað dettur inn

21.10.2011 14:05

VEIÐI 2012

Samkvæmt áræðanlegum heimildum hefur fréttastofa Óðflugu Angling club
heyrt að meðlimir Óðflugu eigi  bókað í sjóbirting næsta vor í Eldvötnin
Nokkuð ljóst að of erfitt er að bíða í 8 mánuði eftir nýju tímabili í laxinn...
Greinilegt að meðlimirnir eru farnir að sjá fleira en lax í augunum enda
er sjóbirtingur ívið skemmtilegri í töku (segja fróðir menn)




*Edit* Staðfest!!!



18.10.2011 13:07

Lokahóf Óðflugu

Daginn drengir



Vil þakka Bóbó fyrir að opna húsið sitt fyrir meðlimi Óðflugu og frábæra gestrisni.
Þetta var frábært kvöld - góður matur og umfram allt góðir strákar...
Veiðihópurinn verður alltaf sterkari og sterkari og reynslunni ríkari með hverju veiðiárinu.

Hlakka til að veiði með nýju meðlimum Óðflugu á nýju ári.




09.09.2011 10:52

Styttist í lok tímabils..

Nú hefur veiði verið lokið í Elliðaánum og eru lokatölur úr henni 1150 laxar sem er ekki nema 14 löxum minna en í fyrra. Áin er full af laxi frá stíflu og upp að Höfuðhyl þannig að nóg er eftir af laxi í ánni til að hrygna.

Laxá í Ásum er líka að loka og er veiðin þar 433 laxar á móti 763 löxum í fyrra sem er hrap uppá 300 laxa. Mikið minna hefur veiðst í mörgum ánum fyrir norðan en í venjulegu ári hver svo sem skýringin kann að vera.

Það virðist þó vera að margar árnar verði nálægt sínum meðaltölum þannig að þetta ár fer líklega í bækurnar sem meðalár í veiðinni. Það er bara ekki hægt að fara fram á metár á hverju ári en nokkrar árnar hafa þó slegið sín met og nægir þar að nefna t.d. Svalbarðsá, Jöklu og svo erum við 100% viss um að Breiðdalsá slái nýtt met og fari jafnvel í 1300 laxa.

20.08.2011 09:24

Norðlingafljót

Bósi okkar maður var við veiðar í Norðlingafljóti í borgarfirði í sól og blíðu í vikunni ásamt karl föður sínum og öðrum félögum. Þeir feðgar settu í og lönduðu nokkrum glæsilegum löxum og voru að koma grálúsugir laxar á land með halalús og alles. Hér má sjá 2 myndir af svæðinu, alltaf fallegt í borgarfirði.




11.08.2011 13:18

Laxar á land

Góðan daginn, Óttarr Þór okkar maður var við veiðar í gær á vestfjörðum og setti í nokkra laxa og landaði 2. Hér má sjá myndir af löxunum í blíðskapar veðri! það vantaði bara David Attenborough til að mynda daginn. 




09.08.2011 13:06

Langá Del Sol

Okkar stórlaxamaður Guðmundur góði eða Bóbó eins og hann er kallaður var við veiðar í langá ásamt félaga sínum og settu þeir í nokkra laxa við Costa del sol aðstæður og lönduðu nokkrum og var þar á meðal maríulax hjá félaganum og við óskum honum að sjálfsögðu til hamingju. Næst á dagskrá hjá Óðflug mönnum er Eystri Rangá 26 ágúst nema að annað detti inn (Öngullinn).   


Flettingar í dag: 47
Gestir í dag: 18
Flettingar í gær: 75
Gestir í gær: 36
Samtals flettingar: 160413
Samtals gestir: 40446
Tölur uppfærðar: 16.5.2012 21:38:46