17.07.2011 22:58
Laxá í Aðaldal 2011




10.07.2011 11:58
Miðfjarðará 2011





02.07.2011 19:14
Eystri Rangá
27.06.2011 09:28
Lofar góðu....
8 dagar kútarnir mínir!
Fengið að láni frá Mbl.is
"Opnun Selár í Vopnafirði á laugardag mun fara í sögubækurnar sökum metveiði. Alls veiddust tuttugu laxar á aðeins fjórar stangir sem bætir met síðustu tveggja ára sem menn töldu að væri erfitt.
Leigutaki Selár, Orri Vigfússon, formaður Strengs, segir að þeir sem voru svo lánsamir að eiga opnunardaginn muni seint gleyma þessum ævintýralega degi. Ekki aðeins var tuttugu löxum landað heldur settu menn í annað eins af laxi og misstu. "Það er mikið vatn í Selá og erfitt að eiga við stóran lax. Því má segja eðlilegt að margir sluppu."
Laxarnir voru að mestu leyti tveggja ára fiskar frá tíu til fjórtán pund. Það vakti þó athyli að tveir eins árs laxar veiddust sem voru afar vel haldnir úr sjó, eða um sex pundin.
Orri segir mikið af laxi vera gengið enda þó að áin sé aðeins fimm gráðu heit.
Metveiði var við opnun Selár í fyrra, sem er til marks um mikinn árangur í uppbyggingarstarfi í ánni. Þá var veðrið og skilyrði til veiðiskapar betri en nú, en Orri vill ekkert segja um það hvort góð opnun hafi forspárgildi um metveiði í sumar."

26.06.2011 20:56
Fyrsti Óðflugu laxarnir komnir á land!!
09.06.2011 10:08
Lax snemma á ferðinni í Aðaldalnum
Á vefnum Vötnogveiði.is kemur fram að Jón Eyfjörð hafi í gær landað 92 cm nýgenginni hrygnu á Breiðeyri fyrir löndum Laxárfélagsins, en þar er stunduð urriðaveiði fyrir laxveiðitímann. Tók viðureignin 35 mínútur.
Í fyrrasumar mætti lax snemma í Aðaldalinn, og sem dæmi þá gaf vikan 7-14. júlí á sjötta tug laxa á Nesveiðum og var meðalþungi þeirra 17.2 pund!.
Þá voru göngur stórlaxa snemma á ferðinni og júlíveiðin sú besta í tvo áratugi.
Rétt er að geta þess að ein stöng er í endursölu dagana 7-10. júlí á Nesveiðum, og er hún aðgengileg í vefsölunni.
Frétt tekin af vef SVFR
Mynd: Klaus Frimor fékk þennan í Vitaðsgjafa í júní í fyrra.
07.06.2011 10:41
Lax og aftur lax
Nú er laxveiðin formlega farin af stað og er opnunarhollið í Norðurá farin að nálgast 15 laxa rétt eins og Bjarni Júll formaður SVFR spáði fyrir um. Blanda er á ágætis róli en kuldin setti strik í reikningin þar eins og í Norðurá en þetta kroppast upp. Allir laxarnir sem eru komnir á land eru 2 ára laxar silver all over sumir með lús en aðrir ekki J Hérna kemur ein mynd af Herði Vilberg með 74 cm hrygnu sem hann tók á rauðan frances á brotinu í Norðurá.
03.06.2011 22:50
Laxveiðin að byrja!!

03.06.2011 22:39
Laxinn mættur í Aðaldalinn
25.05.2011 13:33
Heyrst hefur.....
-Heyrst hefur að Kalli Lú sé taka upp nýja mynd en hún á að heita Leitað af vinum
og fara tökur fram í Central Park í NY.
-Heyrst hefur að Róbert sé að slá út flugusafnið hjá Kröflu.is en Trésmiðaverkstæðið Tré-X
sá um að fjöldaframleiða flugubox fyrir hann til að koma þeim fyrir.
-Heyrst hefur Einar í Rangá hefur sleppt öllum 2010 seiðastofninum í Eystri í fyrra og
hægt sé að ganga yfir Eystri núna án þess að blotna!
-Heyrst hefur að eldgos sé fyrir austan núna!!!
-Heyrst hefur að Þingvallavatn sé vaknað úr værum draumi og allt sé kraumandi - Fín upphitun þar.
-Heyrst hefur að menn ætli að slá út 20 punda markið í sumar og menn séu að sauma saman
laxapokana til að þeir komist ofan í.
23.05.2011 22:09
Stórstreymi
Góða kvöldið, ég gluggaði í flóðatöfluna í söluskrá SVFR í kvöld og sá að það er stórstreymi 3.júlí! það lítur mjög vel út þar sem Miðfjarðará ferðin verður 5-8 júlí. Það er svo stórstreymi 16.júlí og það er súper líka þar sem við eigum svæði 1 í Aðaldalnum um morgunin (Æðarfossana). Þetta hefur kannski ekki úrslita áhrif en ætti kannski að bjóða okkur smá auka líkur á einum fimm pundara eða svo, eða jafnvel einum úr 100+ klúbbnum.
- 1
- 2
