31.08.2010 18:49

Stóra Laxá 1&2

Góðan og blessaðan daginn,

Við Óðflugu menn vorum að klára í Stóru Laxá ásamt veiðiklúbbnum Dýrbítarnir og var ferðin vel heppnuð. Ekki vorum við nú neitt of vongóðir þegar við skoðuðum veiðibókina og svo var lítið vatn í ánni en við létum þetta ekki hafa áhrif á okku og lönduðum 10 löxum, 5 birtingum og svo kom ein 5 punda bleikja. Allir voru þessir fiskar silfraðir og flottir og greinilegt að næstu dagar eiga bara eftir að verða betri og ég tala nú ekki um ef það fer að rigna. Svo er ekki annað hægt en að minnast á matinn í ferðinni!! jú það var sjálfur Viggi Stál sem eldaði ofan í mannskapinn og váááá þetta var veisla vægast sagt!. Það eru svo komnar myndir úr ferðinni ekki allar þó en þær koma hægt og rólega inn.









Flettingar í dag: 10
Gestir í dag: 6
Flettingar í gær: 46
Gestir í gær: 31
Samtals flettingar: 152389
Samtals gestir: 37711
Tölur uppfærðar: 9.2.2012 04:42:32