05.09.2010 11:19

Uppgjöf....o nei! Eystri here we cum

Haustið að bresta á og laxatímabilið senn að klárast...

Óðflugumenn eru ennþá með blóðbragð í munninum og eftir að hafa tæmt það litla sem var í "Stóru"-Laxá er kominn tími á að kíkja á æfingasvæði Óðflugu - Eystri Rangá.
Einar í Eystri nelgdi niður góð svæði fyrir strákana og biðjum við núna fyrir fallegu haustveðri þegar að við förum því Swiss Miss er orðið úrelt.

Stálið er kominn með æði fyrir líklegustu fluguna á Íslandi í dag ,  Kolskeggnum sem fæst hjá honum Stefáni í Krafla.is á Höfðabakka 3. Ef ég mætti ráða myndi hún heita Angelina Jolie því það er enginn hængur sem getur látið hana í friði.

17. Sept er settur veiðidagur og hlakka ég til og hver veit nema að Óðalsbóndinn Óttarr á Gilsbakka hleypi strákunum inn kvöldið áður og eldi nú eitthvað fallegt.

Kv.
Vignir

Flettingar í dag: 30
Gestir í dag: 16
Flettingar í gær: 52
Gestir í gær: 20
Samtals flettingar: 151472
Samtals gestir: 37291
Tölur uppfærðar: 28.1.2012 17:53:05